|
|
09.03.2011
LSB býður óverðtryggð lán fyrstur lífeyrissjóða
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA hefur ákveðið að bjóða sjóðfélögum upp á óverðtryggð lán, fyrstur lífeyrissjóða á landinu. Um er að ræða veðlán og er hámarkslánsfjárhæð tíu milljónir króna með lánstíma til allt að fimm ára. Lánin eru veitt meðal annars til tækjakaupa og framkvæmda.
Með óverðtryggðum skammtímalánum er verið að koma til móts við sjóðfélaga um aukna möguleika til að fjármagna smærri framkvæmdir eða tækjakaup á styttri lánum en verið hefur.
Vextir lánanna taka mið af vöxtum óverðtryggðra lána sem Seðlabanki Íslands birtir, nú 5,25%, auk álags sem ákveðið er af stjórn sjóðsins, nú þrjú prósentustig. Í mars verða vextir lánanna því 8,25%.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
09.03.2011
LSB býður verðtryggð lán með breytilegum og föstum vöxtum
Á stjórnarfundi lífeyrissjóðsins 25. febrúar 2011 var samþykkt að gefa sjóðfélögum kost á verðtryggðum lánum með ákvæðum um fasta vexti en fram til þessa hafa öll verðtryggð lán verið með breytilegum vöxtum.Vextir lána með ákvæðum um fasta vexti verða 5,5% en breytilegir vextir lána sjóðsins eru nú 5,0%.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
28.01.2011
Mótframlag bænda 4% frá 1. janúar 2011
Mótframlag bænda verður 4% frá 1. janúar 2011. Mótframlagið var 8% frá júlí til desember 2010.
Stofn til tryggingagjalds lækkar að sama skapi, sjá úterikning á forsíðu.
01.07.2010
Innheimta mótframlags
Fjársýsla ríkisins innheimtir iðgjöld og mótframlag af beingreiðslum bænda sem þeirra njóta. Þeir þurfa því ekki að senda sérstakar skilagreinar vegna mótframlagsins.
Iðgjöld þeirra, er ekki njóta beingreiðslna, innheimtir sjóðurinn eftir sem áður mánaðarlega með greiðsluseðlum. Gjalddagi er þá 10. dagur næsta mánaðar eftir launatímabil og eindagi 20 dögum síðar.
Þessi innheimta á eingöngu við um þá bændur sem reikna sér laun. Lögaðilar, þar sem búrekstrarformi er þannig háttað að aðilar að búrekstrinum fá greidd laun mánaðarlega, skulu skila iðgjöldum og mótframlagi beint til sjóðsins.
01.05.2010
Árskýrsla 2009 er komin á vefinn
Ársskýrslur
11.01.2010
Breytingar á tekjuskatti - ábyrgð lífeyrisþega
Lögum um tekjuskatt var breytt í desember sl. og taka þær breytingar gildi frá og með 1. janúar 2010. Með breytingunum var tekjuskatti skipt í 3 þrep.
Tekjuskattur, að viðbættu 13,12% útsvari, er frá 1. janúar 2010 sem hér segir:
- 37,22% af tekjum undir 200.000 kr. á mánuði.
- 40,12% af tekjum á bilinu 200.001-650.000 kr. á mánuði
- 46,12% af tekjum yfir 650.000 kr. á mánuði.
ATHUGIÐ að það er á ábyrgð hvers lífeyrisþega að tilkynna í hvaða skattþrepi tekjuskattsgreiðslur eiga að vera. Séu laun greidd frá fleiri en einum launagreiðanda er mikilvægt að slíkar upplýsingar berist sjóðnum til að tryggt sé að réttur tekjuskattur sé reiknaður hverju sinni. Komi til þess að röngum tekjuskatti sé skilað kemur til uppgjörs við álagningu í ágúst ár hvert með 2,5% álagi.
27.08.2009
Lífeyrissjóður bænda verður ekki fyrir tjóni vegna mistaka við kröfulýsingu.
Í ljósi fréttaflutnings í dag um að Lífeyrissjóður bænda hafi verið of seinn að lýsa 23,6 milljóna kröfu í Straum-Burðarás, vegna mistaka hjá Jöklum-Verðbréfum hf., vill Lífeyrissjóður bænda koma því á framfæri að sjóðurinn mun ekki verða fyrir tjóni vegna þessa. Frágengið er að Jöklar-Verðbréf hf., sem annast fjárvörslu fyrir sjóðinn, muni bæta sjóðnum þessi mistök.
25.06.2009
Framkvæmdastjóraskipti
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda hefur ráðið Völu Rebekku Þorsteinsdóttur, lögfræðing, sem framkvæmdastjóra sjóðsins frá og með 8. júní sl. Vala er ekki alls ókunnug sjóðnum en hún var skipuð tímabundið í stól framkvæmdastjóra í byrjun maí síðastliðinn. Auk þess sat hún í stjórn sjóðsins frá 1. september 2008 og þar til hún var skipuð framkvæmdastjóri. Vala tók við stöðunni af Sigurbjörgu Björnsdóttur sem hafði starfað hjá sjóðnum síðan 1983, þar af sem framkvæmdastjóri síðan 1995. Sigurbjörgu eru við þessi tímamót þökkuð einstaklega vel unnin og góð störf fyrir sjóðinn
25.06.2009
Ársskýrsla 2008 er komin á vefinn
Ársskýrsla 2008
19.03.2009
Viðunandi staða Lífeyrissjóðs bænda í árslok 2008
Nafnávöxtun var -4,3% og hrein raunávöxtun -17,9%. Meðaltal nafnávöxtunar síðustu 5 ára nam 8,18% og hreinnar raunávöxtunar 0,7%. Sjóðinn vantar 5,4% eða 1.205 mkr. til að eiga fyrir áföllnum skuldbindingum og 9,3% eða 2.775 mkr. til að eiga fyrir heildarskuldbindingum. Efnahagshrunið síðasta haust hafði töluverð áhrif á stöðu sjóðsins en eignir hans rýrnuðu um 5,9% frá ársbyrjun 2008. Taka þarf þó tillit til þess að lífeyrisbyrði sjóðsins er um 161% og þarf hann því árlega að ganga á ávöxtun ársins eða eignir eins og raunin varð 2008. Réttindi í sjóðnum verða ekki skert að svo stöddu. Ársfundur sjóðsins var haldinn á Búnaðarþingi 4. mars sl. Auglýsing um meginniðurstöður ársreikningsins birtist í Bændablaðinu 26. mars. Auglýsing 2008
08.09.2008
Ársfundargerð 2008 er komin á vefinn
Ársfundargerð 2008
10.07.2008
Endurhæfingarsjóður skv. kjarasamningi ASÍ og SA
Samkvæmt kjarasamningum fyrr á þessu ári stofnuðu ASÍ og SA endurhæfingarsjóð með það að markmiði "að draga markvisst úr líkum á því að starfsmenn hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum." Almennu lífeyrissjóðirnir annast innheimtu á 0,13% framlagi atvinnurekenda í þennan sjóð. Endurhæfingarsjóðurinn er á vegum stéttarfélaganna en ekkert stéttarfélag er tengt Lífeyrissjóði bænda og hann ekki einn af almennu lífeyrissjóðunum. Lífeyrissjóður bænda innheimtir því ekki framlag í Endurhæfingarsjóð.
10.04.2008
Ársskýrsla 2007 er komin á vefinn
Ársskýrsla 2007
27.03.2008
Ársfundur 2008 verður haldinn 21. apríl
Auglýsing um ársfund 2008
27.03.2008
Traust staða Lífeyrissjóðs bænda í árslok 2007
Nafnávöxtun var 4,9% og hrein raunávöxtun -1,07%. Meðaltal nafnávöxtunar síðustu 5 ára man 11,94% og hreinnar raunávöxtunar 6,87%. Samsetning eigna sjóðsins er með þeim hætti að skuldabréf eru að mestu í verðbréfasjóðum sem gerðir eru upp á markaðsverði en ekki kaupkröfu. Kaupkrafa gefur hærri ávöxtun og má leiða líkur að því að nafnávöxtun hefði verið nær 7% og hrein raunávöxtun í kringum 1% hefði sú uppgjörsaðferð verið notuð. Raunveruleg staða sjóðsins endurspeglast í tryggingafræðilegri stöðu sem er áfram góð. Eignir umfram áfallnar skuldbindingar nema 20,7% og umfram heildarskuldbindingar 9,2%.
Meira
25.02.2008
Nýjar lánareglur
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda samþykkti nýjar lánareglur fyrir sjóðinn á fundi sínum í dag. Hámarkslán voru hækkuð í 25.000.000 og vextir voru lækkaðir. Lánsumsóknir eru afgreiddar á stjórnarfundum.
Lánareglur 2008
30.10.2007
Fræðsluvefur um lífeyrismál ,,gottadvita.is” opnaður.
Gunnar Baldvinsson, formaður fræðslunefndar LL, Arnar Sigurmundsson, formaður LL og Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, við opnun fræðsluvefsins "Gottadvita.is".
Mánudaginn 29. október s.l opnaði Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, nýjan fræðsluvef Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál. Vefslóðin er ,,gottadvita.is.” Á heimsíðum flestra lífeyrissjóða er hnappur sem hægt er að smella á til að færast á fræðsluvefinn. Mikil vinna var lögð í uppsetningu vefsins með það að leiðarljósi að auðvelt væri að finna upplýsingar. Þannig eru t.d. öll svör tiltölulega stutt og hnitmiðuð. Vefnum er ritstýrt af Gunnari Baldvinssyni, framkvæmdastjóra Almenna lífeyris- sjóðsins og Hrafni Magnússyni, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða. Vefurinn er unninn af Anok-margmiðlun, en Hvíta húsið hefur aðstoðað við útlit vefsins. |
29.03.2007
Ársfundargerð 2007 er komin á vefinn
Ársfundargerð 2007
13.03.2007
Ársskýrsla 2006 er komin á vefinn
Ársskýrsla 2006
13.03.2007
Góð staða hjá Lífeyrissjóði bænda
Eignir sjóðsins eru 9,8% umfram heildarskuldbindingar í árslok 2006. Nafnávöxtun var 16,19% og hrein raunávöxtun 8,64%.
Meginniðurstöður ársreiknings 2006
13.02.2007
Ársfundur verður haldinn 7. mars n.k. kl. 13:00 í Súlnasal í Bændahöllinni
Auglýsing um ársfund 2007
16.01.2007
Tekjuathugun framkvæmd miðað við eldri reglur
Tekjuathugun 2006 sem framkvæmd var í júlí 2006 og koma átti til framkvæmda 1. febrúar n.k. verður felld niður. Í stað þess verður framkvæmd ný tekjuathugun samkvæmt eldri vinnureglum og kemur hún til framkvæmda 1. febrúar.
Tekjuathugun örorkulífeyrisþega
01.01.2007
Mótframlag atvinnurekenda hækkar í 8%
Með lögum nr. 167/2006 hækkar mótframlag í lífeyrissjóði almennt úr 6% í 8% frá 1. janúar 2007. Þetta á einnig við um Lífeyrissjóð bænda.
01.01.2007
Nýtt auðkenni fyrir Lífeyrissjóð bænda
Lífeyrissjóður bænda hefur tekið í notkun nýtt auðkenni fyrir sjóðinn með skammstöfuninni LSB í stað LB
og er það í samræmi við veffang sjóðsins.

01.01.2007
Nýjar samþykktir fyrir Lífeyrissjóð bænda
Samþykktirnar voru staðfestar af fjármálaráðuneytinu 29. desember 2006 og komu til framkvæmda 1. janúar 2007. Með samþykktum þessum er tekin upp aldurstenging réttinda hjá sjóðnum með heimild til jafnrar ávinnslu réttinda skv. ákveðnum reglum. Ný ákvæði um lífeyrisréttindi taka einnig gildi.
Samþykktir 1.1.2007
Réttindatafla - Vidauki A - 1.1.2007
09.11.2006
Auka - Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda
Auka - Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda var haldinn þriðjudaginn 3. október sl.
Fundargerð Aukaársfundar 2006
15.09.2006
Aukaársfundur Lífeyrissjóðs bænda 2006 verður haldinn 3. október n.k. kl. 15:00 í kaffistofu Bændasamtaka Íslands á 3. hæð í Bændahöllinni
Auglýsing - Aukaársfundur 2006
15.09.2006
Tillaga um breytingar á samþykktum
Efni til kynningar á aukaársfundi sjóðsins þriðjudaginn 3. október 2006. Tillaga um breytingar á samþykktum
11.09.2006
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda var haldinn þriðjudaginn 13. júní sl.
Ársfundargerð 2006
29.05.2006
Nýtt upplýsingarit frá Landssamtökum lífeyrissjóða
Landssamtök lífeyrissjóða hefur gefið út nýtt upplýsingarit um lífeyrismál. Ritið er fáanlegt á skrifstofum lífeyrissjóðanna og hjá Landssamtökum lífeyrissjóða og einnig er hægt að nálgast það á "Acrobat"formi á heimasíðu Landsamtaka lífeyrissjóðanna
04.05.2006
Ársfundur verður haldinn 13. júní n.k. kl. 16:00 í Skála á 2. hæð í Bændahöllinni
Auglýsing um ársfund 2006 (Auglýsing)
04.05.2006
Tillaga um breytingu á samþykktum fyrir sjóðinn
Tillaga um breytingu á samþykktum - Til kynningar á ársfundi 2006
04.05.2006
Ársskýrslan 2005 er kominn á vefinn
Ársskýrslur
11.10.2005
Nýjar lánaregur - hærri lán - lengri lánstími
Í dag taka gildi nýjar lánareglur hjá Lífeyrissjóði bænda. Hámarkslán hafa hækkað og lánstími lengst. Nýjar lánareglur
18.08.2005
Lánveitingar og innheimta sjóðfélagalána
Vegna sölu Lánasjóðs landbúnaðarins flyst afgreiðsla og innheimta sjóðfélagalána Lífeyrissjóðs bænda til lífeyrissjóðsins síðari hluta ágústmánaðar 2005.
Lánveitingar og innheimta sjóðfélagalána
15.08.2005
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda var haldinn þriðjudaginn 14. júní sl.
Ársfundargerð 2005
02.05.2005
Ársfundur verður haldinn 14. júní n.k. kl. 16:00 í Skála á 2. hæð í Bændahöllinni
Ársfundur 2005 (Auglýsing)
15.04.2005
Ársskýrslan 2004 er kominn á vefinn
Ársskýrslur
01.02.2005
Lífeyrisþegar athugið - Ný greiðslutilhögun 2005
Frá og með janúar 2005 hefur Greiðslustofa lífeyrissjóða tekið við greiðslu lífeyris frá Lífeyrissjóði bænda. Lífeyrir greiðist mánaðarlega eftirá. Ný greiðslutilhögun 2005
15.09.2004
Breyting á vöxtum sjóðfélagalána 15. september
Á fundi stjórnar Lífeyrissjóðs bænda þann 14. september var ákveðið að breyta viðmiðun vaxta á lánum til sjóðfélaga. Með hliðsjón af þeirri þróun í vaxtamálum sem verið hefur undanfarið var ákveðið að lækka lágmarksvexti úr 6% í 5% og taka upp viðmiðun við ávöxtun íbúðabréfa í stað húsbréfa. Ávöxtun íbúðabréfa hefur verið mun lægri undanfarið en ávöxtun húsbréfa og lækka vextir því nú í 5,34%
23.06.2004
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda var haldinn þriðjudaginn 15. júní sl.
Ársfundargerð 2004
10.5.2004
Ársfundur verður haldinn 15. júni n.k kl. 16:00 í B-sal á 2. hæð í Bændahöllinni
Ársfundur 2004 (Auglýsing)
02.04.2004
Lífeyrisþegar athugið - Breytingar á greiðsludögum 2004
Nauðsynlegt er að breyta greiðslutilhögun lífeyrisgreiðslna hjá Lífeyrissjóði bænda á árinu 2004. Lífeyrir hefur verið greiddur út 15. hvers mánaðar fyrir yfirstandandi mánuð en á tímabilinu apríl til október verður greiðsludegi seinkað um nokkra daga í hverjum mánuði.
Auglýsing um breytingar á greiðsludögum
03.09.2003
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda var haldinn þriðjudaginn 10. júní sl.
Ársfundargerð 2003
30.04.2003
Ársreikningurinn 2002 er kominn á vefinn
Ársreikningur 2002
29.01.2003
Iðgjöld í Lífeyrissjóð bænda - Lagabreyting
Frá 1. janúar 2003 eru makar bænda sem ekki starfa að búrekstri, þ.e. reikna sér hvorki laun í landbúnaði né þiggja laun fyrir búrekstur frá eigin einkahlutafélagi eða félagsbúi, sjálfkrafa undanþegnir aðild að Lífeyrissjóði bænda.
Meginbreytingin er sú að:
- Ekki þarf lengur að sækja um undanþágu maka frá sjóðsaðild.
- Iðgjöldum er ekki skipt á milli hjóna/sambýlisfólks.
- Maki sem reiknar sér ekki laun í landbúnaði en greiðir þó ekki að fullu í annan lífeyrissjóð getur óskað eftir aðild að sjóðnum. Í slíkum tilvikum þarf bóndinn að sækja um skiptingu iðgjalda sinna á milli þeirra í hæfilegum hlutföllum.
Meira
01.11.2002
Samningur við Búnaðarbankann
Þann 29. október var skrifað undir fjárvörslusamning við Búnaðarbanka Íslands.
Meira
31.10.2002
Yfirlit til sjóðfélaga
Á næstu dögum mun Lífeyrissjóður bænda senda greiðandi sjóðfélögum yfirlit yfir iðgjaldagreiðslur.
Meira
18.10.2002
Bæklingur Landssamtaka lífeyrissjóða um skiptingu ellilífeyrisréttinda milli hjóna
Bæklingur Landssamtaka lífeyrissjóða um skiptingu ellilífeyrisréttinda eða ellilífeyrisgreiðslna milli hjóna eða sambýlisfólks sem gefinn var út árið 2000 er nú aðgengilegur á vefnum.
Bæklingurinn
15.09.2002
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda var haldinn 11. júní
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda var haldinn þriðjudaginn 11. júní sl.
Ársfundargerð
7.5.2002
Ársfundur verður haldinn 11. júni n.k kl. 16:00 í B-sal á 2. hæð í Bændahöllinni
Auglýsing um ársfund 2002
2.5.2002
Ársskýrslan 2001 er komin á vefinn
Ársskýrslur
2.5.2002
Yfirlit til sjóðfélaga
Í lok apríl sendi Lífeyrissjóður bænda yfirlit yfir bókun réttinda á árinu 2001. Nokkur viðbrögð hafa verið við yfirlitunum aðallega varðandi skiptingu réttinda milli hjóna/sambýlisfólks.
Meira
25.4.2002
Innheimta vegna eftirlits RSK með iðgjaldagreiðslum árið 2000
Lífeyrissjóður bænda er nú að innheimta vangreidd iðgjöld bænda vegna ársins 2000 skv. upplýsingum sem nýlega hafa borist frá ríkisskattstjóra. Samræmdar aðferðir eru við innheimtuna hjá lífeyrissjóðunum og er miðað við einn gjalddaga, þ.e. 10. janúar 2001. Mikilvægt er fyrir bændur að samræma eins og hægt er reiknað endurgjald í staðgreiðslu og framtalið reiknað endurgjald á skattframtali til þess að lágmarka þessa innheimtu í framtíðinni.
16.4.2002
Meginniðurstöður ársreiknings 2001
Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs bænda á árinu 2001 nam 5,23% en það jafngildir 3,11% neikvæðri raunávöxtun. Síðustu fimm ár var raunávöxtun sjóðsins að meðaltali 4,44% á ári. Hrein eign til greiðslu lífeyris nam tæplega 12 milljörðum króna í lok ársins. Ársfundur sjóðsins verður haldinn í Bændahöllinni þriðjudaginn 11. júní kl. 16:00.
Sjá nánar í auglýsingu
11.12.2001
Samningur við Landsbréf
Þann 11. desember var skrifað undir fjárvörslusamning við Landsbankann-Landsbréf.
Meira
15.11.2001
Nýtt upplýsingarit frá Landssamtökum lífeyrissjóða
Landssamtök lífeyrissjóða hefur gefið út upplýsingarit um lífeyrismál. Ritið er fáanlegt á skrifstofum lífeyrissjóðanna og hjá Landssamtökum lífeyrissjóða og einnig er hægt að nálgast það á "Acrobat"formi á heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóðanna
12.6.2001
Breyting á iðgjaldainnheimtu
Iðgjöld bænda sem eru með reiknað endurgjald í landbúnaði í staðgreiðslu og njóta ekki beingreiðslna eru nú innheimt með greiðsluseðlum. Fyrsti gjalddagi iðgjalds ársins 2001 var 10. júní var þá innheimt fyrir tímabilið janúar – maí. Eindagi greiðslu er 10. júlí. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga sé ekki greitt fyrir eindaga. Framvegis verður iðgjaldið innheimt mánaðarlega, þ.e. 10. júlí með eindaga 10. ágúst og síðan koll af kolli.
Meira |
|
|