|
|
| Samanburður lífeyris og réttinda |
|
| Sjóðfélagi á 10 stig í sjóðnum. Verðgildi iðgjaldahluta þeirra á árinu 2005 var 328.396 krónur. Mánaðarellilífeyrir á árinu 2005 út á þessi réttindi hefði verið 9.495 krónur. Eftir 3ja ára greiðslu ellilífeyris væri Lífeyrissjóður bænda búinn að greiða 341.823 krónur (miðað við sama verðlag). |
| Ef við reiknum mótframlagið með var verðgildi 10 stiga 820.989 krónur. Eftir rúmlega 7 ár hefur sjóðurinn greitt ellilífeyrisþeganum þessa upphæð. |
|
| Dæmi um samanburð lífeyris og réttinda miðað við grundvallarlaun árið 2005: |
|  |  |  |  |
| Verðgildi iðgjalda miðað við 10 stiga réttindi |  | 328.396 | krónur |
| Mánaðarlífeyrir 2005 |  | 9.495 | krónur |
| Endurgreiðslutími þessara réttinda | 34,59 mán | 2,88 | ár |
| Heildarverðgildi 10 stiga 2005 |  | 820.989 | krónur |
| Endurgreiðslutími þessa verðgildis | 86,46 mán | 7,21 | ár |
| Í langflestum tilvikum greiðir sjóðurinn út meiri lífeyri vegna hvers sjóðfélaga, en það verðmæti, sem stendur að baki réttindanna. Í örorku- og makalífeyristilvikum er t.d., auk lífeyris vegna áunninna réttinda, greiddur lífeyrir vegna áætlaðra réttinda til 67 ára aldurs. |
|
|
|