lsb.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst til sjóðsins

  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
 
Um sjóðinn
Auglýsingar
Fréttir
Sjóðfélagar
Iðgjöld
Skilagreinar
Lífeyrir
Lífeyrisumsóknir
Réttindin mín
Sjóðfélagalán
Greiðslujöfnun
Séreignarsparnaður
Innskráning
 
Vefpóstur LB


Lífeyrissjóður bænda

Lög og samþykktir
Lífeyrissjóður bænda var stofnaður með lögum nr. 101/1970 og tók til starfa 1. janúar 1971. Á árinu 1984 fékk sjóðurinn ný heildarlög, nr. 50/1984, og í kjölfar almennrar lagasetningar um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, lög nr. 129/1997, voru sjóðnum sett ný heildarlög í mars 1999, lög nr. 12/1999, og tóku þau gildi 1. júlí 1999. Á sama tíma tóku gildi samþykktir fyrir sjóðinn. Með lögum nr. 66/2001 var gerð breyting á lögunum varðandi innheimtu iðgjalda. Með lögum nr. 140/2002 var afnumin skylduaðild þeirra maka bænda sem ekki starfa að búrekstri og jafnframt afnumin skipting iðgjalda milli hjóna/sambúðarfólks nema í þeim tilvikum sem bóndinn hefur óskað eftir skiptingu og makinn óskað eftir aðild að sjóðnum. Með lögum nr. 39/2005 var sjóðnum gert kleyft að taka upp aldurstengingu réttinda og hækka iðgjöld og mótframlög til sjóðsins. Þá voru með lögum nr. 78/2006 felld niður lífeyrisréttindaákvæði laganna þar sem lög un skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, kveða á um lífeyrisréttindin. Auk þess var um að ræða uppstokkun á lögunum til að gera þau skýrari og fjalla þau nú eingöngu um þau atriði sem hafa sérstöðu hjá sjóðnum svo sem varðandi sjóðsaðild, iðgjöld og innheimtu þeirra. Öll ákvæði um lífeyrisréttindi eru eftir sem áður í samþykktum fyrir sjóðinn. Nýjar samþykktir tóku gildi 1. janúar 2007 en með þeim var tekin upp blönduð réttindaávinnsla, þ.e. bæði aldurstengd og jöfn réttindi. Með lögum nr. 167/2006 var mótframlag í sjóðinn hækkað úr 6% í 8%. Nýjustu samþykktir um sjóðinn voru staðfestar af fjármálaráðuneytinu 29. apríl 2009 og tóku þegar gildi.

Sjóðurinn lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins.

Endurskoðandi
Ernst & Young hf. annast endurskoðun og innra eftirlit. Árni Snæbjörnsson er aðalendurskoðandi sjóðsins.

Aðsetur
Sjóðurinn hefur aðsetur í Bændahöllinni við Hagatorg, 107 REYKJAVÍK
Kennitala: 670172-0589
Sími: 563 0300 Myndsendir: 561 9100 Netfang: lsb@lsb.is
Skrifstofa sjóðsins er opin frá kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 16:00.
Númer lífeyrissjóðsins er: 260

Stjórn og starfslið
Fjármálaráðherra skipar stjórn Lífeyrissjóðs bænda til fjögurra ára í senn skv. 2. gr. laga nr. 12/1999, sbr. 4. gr. samþykkta.

Frá 1. janúar 2007 er stjórn sjóðsins þannig skipuð:
    Aðalmenn:

    Tilnefndir af:
    Skúli Bjarnason, formaður, ReykjavíkHæstarétti
    Guðmundur Grétar Guðmundsson, Kirkjubóli, DýrafirðiBændasamtökum Íslands
    Örn Bergsson, Hofi, ÖræfumBændasamtökum Íslands
    Loftur Þorsteinsson, Haukholti, FlúðumLandbúnaðarráðherra
    Maríanna Jónasdóttir, ReykjavíkÁn tilnefningar

    Varamenn:Tilnefndir af:

    ...Hæstarétti
    Sigríður Bragadóttir, Síreksstöðum, VopnafirðiBændasamtökum Íslands
    Hörður Harðarson, Laxárdal 2, GnúpverjahreppiBændasamtökum Íslands
    Sigurlaug Gissurardóttir, Brunnhóli, HöfnLandbúnaðarráðherra
    Ingvi Már Pálsson, ReykjavíkÁn tilnefningar


Frá 1. apríl 2010 er endurskoðunarnefnd sjóðsins þannig skipuð:

Örn Bergsson, Hofi, Öræfumornhof@simnet.is
Bjarni Jónssonbjarni@gardyrkja.is
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttirghj@bondi.is

Starfslið sjóðsins er þannig skipað og netföng eru eftirfarandi:

      Framkvæmdastjóri:Ólafur K. Ólafsolafur@lsb.is
      Aðalbókari:Borghildur Jónsdóttirborghildur@lsb.is
      Lífeyris- og lánafulltrúi:Sigrún Þóra Björnsdóttirsigrun@lsb.is
      Iðgjaldafulltrúi:Erla Stefánsdóttirerla@lsb.is
      Ritari, almenn skrifstofustörf:Árdís Jóna Pálsdóttirdisa@lsb.is


 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur

Landbunadur.is

 

Helstu flokkar

Forsíða

Lög

Samþykktir

Meginniðurstöður ársreiknings

Handbók bænda

Eyðublöð

Rafræn skil

Reiknivélar

 

Okkar tenglar

Landssamtök lífeyrissjóða

Gott að vita


Gott að vita