lsb.is
VeftréUm landbúnaðarvefinnSenda póst til sjóðsins

  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
 
Um sjóðinn
Auglýsingar
Fréttir
Sjóðfélagar
Iðgjöld
Skilagreinar
Lífeyrir
Lífeyrisumsóknir
Réttindin mín
Sjóðfélagalán
Greiðslujöfnun
Séreignarsparnaður
Innskráning
 
Vefpóstur LB



Tekið úrSamþykktir 29.04.2009


3. gr. - Sjóðfélagar

    3.1.
Sjóðfélagi er sá sem greitt er fyrir, greiðir eða hefur greitt iðgjald til lífeyrissjóðsins og á hjá honum réttindi.
    3.2.
Sjóðfélagar skulu vera allir bændur og makar þeirra sem starfa að búrekstri. Bóndi, þar með talinn aðili að félagsbúi, einkahlutafélagi eða öðru lögformlegu búrekstrarformi, telst sá er stundar búskap á lögbýli þar sem hann á lögheimili, og búrekstur fellur undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnugreinaflokkun Hagstofu Íslands, sbr. ÍSAT 95, þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.4, 01.5 og 02.02, enda hafi hann náð 16 ára aldri fyrir lok næsta almanaksmánaðar á undan.
    3.3.
Ef maki bónda er ekki aðili að búrekstri og á ekki sjálfsagða fulla aðild að öðrum lífeyrissjóði er sjóðstjórn skylt að veita honum aðild að þessum sjóði óski viðkomandi þess skriflega.
    3.4.
Heimilt er sjóðfélaga skv. gr. 3.2. og 3.7. sem greiðir iðgjald skv. gr. 9.1. að greiða iðgjald skv. gr. 9.2. af öðrum atvinnutekjum en búrekstri ef þessi störf veita ekki sjálfsagða aðild að öðrum lífeyrissjóði.
    3.5.
Launþegar, er starfa við landbúnað, skulu vera sjóðfélagar, enda hafi þeir náð 16 ára aldri fyrir lok næsta almanaksmánaðar á undan og eigi ekki sjálfsagða aðild að öðrum lífeyrissjóði.
    3.6.
Óheimilt er að neita manni um aðild að lífeyrissjóðnum á grundvelli heilsufars hans, aldurs, hjúskaparstöðu, fjölskyldustærðar eða kyns. Sé launamanni samkvæmt lögum skylt að vera félagi í öðrum lífeyrissjóði, veitir hlutaðeigandi starf ekki rétt til þátttöku í þessum sjóði.
    3.7.
Heimilt er stjórn sjóðsins að veita bændum, sem stunda búrekstur utan lögbýla svo og bændum sem ekki eiga lögheimili á bújörðum sínum, aðild að sjóðnum, enda sé um að ræða verulegan búrekstur, sem hlutaðeigandi hefur meiri hluta tekna sinna af. Þá getur sjóðstjórn heimilað sjóðsaðild mökum og sambúðaraðilum þeirra aðila, er um ræðir í þessari málsgrein.
    3.8.
Skylt er forsvarsmönnum lögaðila í landbúnaði; félagsbúa, einkahlutafélaga
eða annars lögformlegs búrekstrarforms að senda sjóðnum skriflega tilkynningu um, hverjir séu aðilar að búrekstrinum. Á sama hátt skulu allar breytingar í þessu efni tilkynntar sjóðnum jafnóðum og þær eiga sér stað.
    3.9.
Heimilt er að flytja iðgjöld og þar með réttindi sem þeim fylgja milli lífeyrissjóða þegar að töku lífeyris kemur. Aðild að sjóðnum fellur niður ef sjóðfélagi fær útborguð réttindi sín í einu lagi eða þau flytjast samkvæmt samskiptareglum lífeyrissjóða í annan lífeyrissjóð.

 

 Leit á vef
Sameiginlegur vefur

Landbunadur.is

 

Helstu flokkar

Forsíða

Lög

Samþykktir

Fjárfestingastefna

Handbók bænda

Eyðublöð

Rafræn skil

Reiknivélar

 

Okkar tenglar

Landssamtök lífeyrissjóða

Gott að vita


Gott að vita